 ATH - Vegna forfalla hafa nokkrir miðar losnað í Flass 104,5 ferðina í boði CULT og Smirnoff ICE.
Nú í 5 ár hefur Flass 104,5 séð til þess að hlustendur okkar dansi hvort sem það er í vinnunni, bílnum eða bara hvar sem er. Í tilefni þess ætlum við að dansa öll saman yfir í dansparadísina IBIZA í samstarfi við ferðaskrifstofuna Trans Atlantic, CULT og Smirnoff ICE
Búið er að setja upp 3 brottfarir í þessa fer, þann 24 juní - 4 júlí, 25. juní - 5 júlí og 26. juní - 4. júlí. Hópurinn er þá allur úti yfir sama tímabilið.
Ibiza er draumaparadís allra sem finnst gaman af því að skemmta sér, sérstaklega ættu þeir sem hafa gaman af danstónlist að finna sig á Ibiza þó svo aðrar stefnur sé einnig að finna á eyunni. Á Ibiza eru skemmtistaðir eins og Privelege, Pacha, Cream og margir fleiri sem allir eru með stærstu plötusnúða heims bakvið spilarana.
Plötusnúðar eins og Tiesto, David Guetta, Armin Van Buuren, Swedish House mafia, Judge Jules, Pete Tong, Eric Morillo, Mauro Picotto og margir fleiri eru með vikuleg party og því verður einfaldlega erfitt að velja hvaða heimsfræga plötusnúð á að kíkja á.
Flass hópurinn ætlar að vera á snilldar hóteli sem heitir Club Punta Arabi sem er hálfgerður skemmtigarður með einka strönd, flottum sundlaugagarði, sínum eigin skemmtistað og fjölda bara.
Allt er innifalið semsagt matur og drykkur á hótelinu og strákarnir frá Flass 104,5 ætla halda uppi fjörinu með allskonar uppákomum.
Smellið hér til þess að kynna ykkur ferðina nánar og skrá ykkur....
Skráning í ferðina er hér
Hér má nálgast frekari upplýsingar um næturlíf Ibiza og um eyjuna sjálfa.
Facebook hópur fyrir þá sem eru á leið í ferðina.!
Kær Ibiza kveðja
Flass 104,5
|