 Þann 5. september mun sveitin 2 UNLIMITED, með söngkonunni Anitu Doth í fararbroddi mæta á Broadway og halda með okkur stærsta 90‘s partý sem haldið hefur verið á Íslandi í áraraðir.
Forsala miða er hafin í Skór.is - Kringlunni og Smáralind og kostar miðinn einungis 2.500 kr.
Ásamt 2unlimited koma fram Flass plötusnúðarnir Sindri BM og Frigore, einnig mun Haffi Haff mæta með rosalegt show og A.K.A. sem er 90's cover act mæta og trylla líðinn..
2UNLIMITED
2 Unlimited var stofnað árið 1991 og var verkefni tveggja belgískra lagahöfunda, rapparans Ray Slijngaard og söngkonunnar Anitu Doth.
Á fimm ára tímabili á 10. áratugnum átti hljómsveitin hvorki meira né minna en 16 slagara sem rötuðu á vinsældarlista í evrópu, þar á meðal lögin „Get ready for this“, „twilight Zone“, „Tribal Dance“ og að sjálfsögðu þeirra allrafrægasta lag „NO LIMIT“. Á þessum tíma seldu þau meira en 20 milljónir platna og 50 milljónir safnplatna.
90‘s tímabilið tók virkilega á hljómsveitina og fyrir 13 árum síðan hætti Ray Slijngaard í hljómsveitinni, síðan þá hefur Anita Doth verið kyndilberi hljómsveitarinnar og þykir showið hennar eitthvað það allra flottasta sem um getur.
Ásamt Anitu koma fram þrautreyndir erlendir dansarar og verður ekkert til sparað í að gera þetta eitthvað allra stærsta party ársins. Til að halda uppi 90‘s fýlingnum bæði fyrir og eftir 2 Unlimited sýninguna hafa 2 af vinsælustu plötusnúðum Íslands þeir Frigore og Sindri BM af Flass 104,5 komið sér í 90‘s tónlistar gírinn og skoðað þetta tímabil út og inn. S
indri BM mun spila á undan Anitu og hefur hann fengið nokkra óvænta gesti til að koma fram með sér svo sem Haffa Haff sem ætlar meðal annars að frumflytja nýtt lag og covera eitt mjög þekkt 90‘s lag.
Þess má geta að þetta er ekki í fyrsta skipti sem tónleikahaldararnir snúa sér að 90‘s tímanum því sömu aðilar eru á bakvið þessa tónleika og voru á bakvið komu Haddaway hingað til lands í fyrra.
|