Atvinna
Útvarpsstöðin Flass 104,5 hefur verið starfrækt undanfarin 6 ár við vaxandi vinsældir. Starfsemi Flass 104,5 hefur verið endurskipulögð og í kjölfarið hafa vinsældir stöðvarinnar aukist til muna. Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir metnaðarfullum einstaklingum til starfa .
Sölumaður
Flass óskar eftir að ráða sölumann. Um er að ræða 100% starf.
Helstu verkefni:
Sala auglýsinga fyrir útvarps og sjónvarpsstöð félagsins sem og á netmiðla þess.
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi æskileg
- Reynsla af sölumennsku
- Rík þjónustulund
- Faglegur metnaður og skipulögð vinnubrögð
